Andrea Elín og Viktor Skúli Ólafsbörn
 

Fiskarnir

 

19. febrúar - 20. mars

Börn í Fiskamerkinu
Fiskabarnið er mikið ævintýrabarn, dreymið og barnalegt og mun vera þannig til áttræðs! Það sýnir fljótt þá eiginleika að vilja fá það sem það vill, þegar það vill. Fiskabörn hafa ofnæmi fyrir áætlunum og venjum. Þau efast oft um getu sína og þurfa því mikla athygli og stuðning. Þau þurfa einnig að fá að vera í friði þegar þau sökkva sér ofan í draumaheim sinn. Hið dæmigerða Fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en tilfinninganæmt og auðsæranlegt. Ekki er ólíklegt að það missi auðveldlega stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát. Mikilvægt er að fara varlega að því og varast að særa tilfinningar þess með vanhugsuðum orðum. Fiskabörn eru mörg hver tónelsk og elska orð og bækur. Þau eru mjög skapandi og elska að búa til hluti sem gleðja aðra - einkum ef það hefur foreldri með sér til að búa til og skapa. Þeirra helsti styrkleiki er kærleiki og umburðarlyndi. 

Meira um Fiska
Fiskar eru í innsta eðli sínu næmar tilfinningaverur og geta tjáð sig á margslunginn hátt. Augu fisksins eru falleg og tjáningarrík enda hafa þeir djúpa ást á lífinu. Þeir eru rómantískir og dreymnir og hafa næma eðlisávísun. Þeir eru mjög hjartahlýir og hjálpsamir enda eru þeir oft vinmargir. Stundvísi er þó ekki þeirra sterkasta hlið. Fiskarnir eru síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að þeir hafi öll önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fiskar geta því verið víðsýnir og margbrotnir, færir um að skilja ólíkt fólk og setja sig í spor annarra. Þeir hafa sterka aðlögunarhæfni en einnig fjölbreytta valkosti um eigið líf.

Fiskar eru oftast miklir dansmenn og hafa yndi af allri tónlist. Áhugi á menningu og listum er einnig áberandi í fari Fisksins. Fiskar hafa mikla þörf fyrir útrás á sköpunargáfu sinni. Þeir taka mikið inn á sig og þurfa að hreinsa sig reglulega af utanaðkomandi áhrifum. Það getur hann gert með því að njóta tónlistar, draga sig annað slagið í hlé eða með því að breyta til og skipta um umhverfi. Fiskar finna sér oft starf sem tengist listum. Margir hverjir eru rithöfundar, tónlistarmenn, vinna við kvikmyndir eða eitthvað í þeim dúr. Vegna sterkrar aðlögunarhæfni og sveigjanleika er þó erfitt að setja Fiskinn á afmarkaðan bás. Hvað sem Fiskurinn tekur sér fyrir hendur þá notar hann innsæi sitt og ímyndunarafl, er skapandi, stórtækur og landamæralaus í athöfnum.

Lykilorð: Upphafning
Pláneta: Neptúnus
Höfuðskepna: Vatn
Litur: Sægrænn
Málmur: Tin
Steinar: Ametýst og ópall
Líkamshluti: Fætur og sogæðakerfi